Jólafundurinn 5. desember

Jólafundurinn 5. desember

Kæru félagar,

jólafundurinn okkar verður með hefðbundnu sniði, að sjálfsögðu. Við gæðum okkur á heitu súkkulaði að hætti Sigurgeirs og hver og einn leggur til eitthvað smávegis á sameiginlegt hlaðborð, til að maula með súkkulaðinu.

Myndasýning er líka fastur liður á jólafundi og að þessu sinni bjóðum við þeim sem það vilja að senda inn uppáhaldsmyndir sínar frá árinu sem er að líða - hámark fimm myndir á mann - sem við skoðum saman.Sendið myndirnar ykkar til Hilmars á netfangið hilmar.fridjonsson@vma.is og setjið "Jólafundur" í efnislínuna.Myndum skal skilað í síðasta lagi á mánudag 4. des.

Fundurinn verður haldinn í sal Fjölsmiðjunnar, Furuvöllum 13, þriðjudaginn 5. desember og hefst kl. 19:30.

Kveðja,

stjórn ÁLKA  

Engin ummæli enn
Leit

Skráningarupplýsingar

Úps! Leyfið hefur ekki verið virkjað


×

Notkunarleyfið að vefkerfinu hefur ekki verið virkjað eða er útrunnið.


Reyndu aftur

  • Ef vefsíðan þín er allt í einu hætt að virka þarftu að hafa samband við þjónustuaðilann eða hýsingarfyrirtækið sem þú greiðir fyrir aðgang að vefkerfinu eða hýsingunni
  • Ef vefsíðan þín er enn óvirk, er líklega ekkert leyfi skráð fyrir kerfinu. Þú getur haft samband við hýsingarfyrirtækið þitt til að fá aðstoð eða sæktu um leyfi fyrir vefinn
    Innskrá þig Sækja um lénatengt leyfi